Krolla krulla

Monday, June 12, 2006

krolla & golf =krolf

Jó jó frends og fó!

Ég hef brennt mig...og ekki í theim skilningi ad einhver hafi farid illa med mig nei nei, ekki nema sólin teljist sem einhver!! Í dag er búid ad vera 30 stiga hiti og oll helgin er búin ad vera í theim dúr ahhh.
Thad kæmi mér ekki á óvart ad ég hafi svitnad um thad bil thyngd mína og thad vid ad spila golf domur mínar og herrar. Já enn á ný leita ég ævintýra á nýjum slódum og thetta er jú eitt af thví viltasta get ég sagt ykkur. Nei thad er lygi en ég er ad farad spila golf alla vikuna. Vid erum í svona themaviku og madur gat valid um allt mogulegt. Fyrst átti ég ad vera í nokkru sem kallad er hyg og byg. Ég held ad ég hefdi nú ekki gert mikid af thví sídara svo ég ákvad ad skipta. Í dag erum vid búin ad læra ad slá...thad gekkagætlega á koflum. Á morgun erum vid svo ad farad hjóla til Glamsbjerg 45 km til ad spila golf thar. Aarg ég get bara ekki haldid í vid thessa donsku hjólaskrímsli sem lærdu ad hjóla ádur en thau gátu sagt cykel...en ég geri mitt besta og vona ad thau skilji mig ekki eftir.
Annad nýtt, jú ég skiladi minn fyrsta fótboltaleik í sídustu viku. Ég var svo sett í ad spila med lidinu sem skólinn minn spiladi á móti thví thær voru ekki nógu margar...gód taktík verd ég ad segja, bara láta allar thær lélegu í hitt lidid. Virkadi líka "mitt lid" tapadi 6-0.
Ég prufadi líka ad keyra traktor í fyrsta skiptid um daginn...ekki mikid ad segja um thad annad en ég hef fundid kollun mína í lífinu.
Farin ad sóla mig.

p.s. blogg um golf og fótbolta...hvad er ordid um mig...ekki óttast ég kem heim brádum!

slater

Monday, May 29, 2006

rææ ræ ræ

Thessi sída hefur verid á stand by sídustu vikur og mér thykir thad leitt. Látum okkur nú sjá hvar vorum vid…já ég fór á blakmót med skólanum í Århus thar sem vid fórum ad sjálfsogdu med sætan sigur af hólmi. Thad var ekkert smá gaman, vid unnum alla leikina okkar og fórum frekar létt med thad. Strákalidid lendi í odru sæti og thad var enn meiri plús ad okkur gekk betur en theim thar sem vid erum búnar ad tapa í allan vetur en their vinna, svo júhú fyrir thví.

Svo vikan eftir thad var smá manía thar sem vid vorum ad æfa bædi fyrir sýninguna sem vid setjum upp med skólanum og fyrir 2. umferd í danskameistaramótinu. Thad gekk ad sjálfsogdu á endanum, vid erum búin ad halda 3 sýningar med skólanum og thad gekk mjog vel. Sýningin er um hálftími held ég og vid ferdudumst til S-Jótlands og m.a Haderslev thar sem Landstevna verdur haldid næst sumar. Fyrir thá sem ekki vita hvad thad er thá er thar risa fimleikasýning med um 30 thús. fimleikafólki og Ollerup er med eina stærstu sýninguna thar. Thad vill líka svo heppilega til ad thad er á nákvæmlega sama tíma og Hróaskelda svo ég er ekki á leidinni thangad. Ég er búin ad vita thetta í rúma 5 mánudu núna en er ekki enn komin yfir thad. En allir their sem thekkja mig og eru á leidinni og vilja hitta mig eru velkomnir.
Svo sídustu helgi var DM og thad gekk frábærlega. Vid nældum okkur í 3 sætid sem var markmidid og Kolbrún Sveinsdóttir fékk sína fyrstu medalíu á erlendri grundu. Vid vorum smá stressud um stund thegar vid fengum ad vita ad thad mætti bara vera med tvo útlendinga í lidinu…vid vorum med fimm. Eina stelpu frá Noregi, eina frá Svíthjód (gód stafsetning hi hi) og thrjá Íslendinga og svo restina dani. Thad komst sem betur fer ekki upp, einn dómaranna sem ég thekki fór eitthvad ad spyrja mig um thetta og ég beitti ”æ ég verd ad fara thad er verid ad bída eftir mér” tækninni og flúdi svo thar skall hurd nærri hælum.
Á sunnudeginum fórum vid svo til Kaupmannahofn til ad sjá fótboltaleik med FCK á móti Silkeborg og ég verd ad segja ad mér hefur aldrei fundis ég svo langt frá heimavelli í lífi mínu. FCK voru búnir ad vinna meistaradeildina svo thessi leikur skipti thá í raun engu máli, thar ad segja addáendurnir mættu bara til ad drekka sig fulla og syngja og láta eins og hálfvitar. Ég nádi ekki ad sjá mikinn fótbolta thví fólkid í kringum mig fangadi alla athygli mína. Svo topudu their leiknum en theim var alveg sama…og mér líka. En thetta var engu ad sídur skemtileg upplifun.

Svo sídustu helgi fór ég aftur til Køben ad hitta mínar yndisfogru systur og Siggu. Thad var frábært, mikid verslad, hlegid, talad og súpid raudvín…gerist ekki betra. Takk fyrir frábæra helgi!

slater

Wednesday, April 26, 2006

Sumar í apríl...jaaaa tak!

Noh noh…mér líkar ekki alveg thessi pressa sem er sett á mig. Ekki thad ad ég sé ekki glod ad thid fylgist med, takk fyrir thad. En annars er ekki svo mikid búid ad gerast sídan sídast. Helgin mín var róleg thar sem næstum allir voru á fimleikahalloji sem var einhverstadar á Fjón. Vid fundum í stadin bara nýjan stad inni í Svendborg sem heitir Hansted og thar er afar huggulegt. Ekki skemmir svo fyrir ad thad er hægt ad kaupa vatnspípur thar inni og reykja eplatóbak, eitthvad sem vantar algjorlega í íslenskt kaffihúsalífid.

Á morgun er ég svo ad fara til Århus thar sem vid erum ad fara ad keppa vid hina Højskolana í hinum ýmsu íthróttagreinum. Ég er ad farad keppa í blaki, en ykkar madur komst í blaklidid í skólanum (fyrir jól var ég bara í lidi nr. 2). Thad verdur thá í annad skiptid sem ég fer thangad en fyrra skiptid var farid í allt odrum tilgangi en nú. Thá fórum vid c.a. 60 saman í afmæli til stráks sem er í skólanum sem var haldi í skipi í hofninni. Skipid var svo eins konar skemmtistadur og allt inni í thví var skreitt med svona Havaii thema (t.e.a.s. bambus og allt of litríkar gardínur) og svo voru alskonar kokteilar og ávaxastaup…afar undarlegt allt saman. Fólkid sem stundadi thennan stad var líka frekar skuggalegt allt en thad hindradi okkur samt ekki í ad verda pisse full.

Og talandi um sól og sumar, thá er thetta allt ad skella á og ekki kominn maí. Thad er búid ad vera frábært vedur alla vikuna. Spád um 20 stiga hita og sól…jaaaa tak. Í gær spiladi ég strandblak á hlýrabol og velti fyrir mér af hverju í anskotanum ég sé fædd á Íslandi.
Vona ad thid hafid thad gott á klakanum múha ha ha.

slater

Tuesday, April 18, 2006

krolla tæknimaestro

Nohh mætt aftur... thar sem frá var horfid…thá var ég ad vinna í Bøvling efterskole mad tveim odrum frá Ollerup og thad gekk mjog vel. Stelpan sem ég var med okkur var alveg frábær.Vid thekktumst ekki beint fyrir en vid hofum bádar verid í skólanum sídan í ágúst sem lýsir thví vel hvad skólinn er stór. En svo var thad lïka einn strákur úr skólanum med, kalladur lille Peter (hann er um 145-150 cm, ég er stór vid hlidiná honum). En allavega thá veit ég ekki alveg hvernig á ad lýsa honum, vid getum byrjad á ad segja ad hann er stígur ekki beint viti og á einstaklega erfitt med ad koma ordunum fyrir sig. Thad getur reynst vandamál thegar útskýra á eitthvad fyrir framan adrenalïnpumpadafimleika unglinga, en thad kom svo á endanum. Svo vissi hann bara aldrei hvad vid áttum ad gera næst og hvad hann átti ad gera thó vid værum búin ad fara í gegnum thad morgum sinnum. Svo á leidinni í skólann vorum vid búin ad tala um ad vid fengjum far med honum, svo kom í ljós ad hann thurfti ad fara í atvinnusamtal í S-Jótlandi fyrst. Allt í lagi med thad, ekkert sem vid gátum gert, en svo thurfti hann adeins ad koma vid heima og fá smá snakk g vasapening frá mommu og thad var alls ekki í leidinni. Svo thad endadi med ad 3 tíma ferdalag vard ad 8 tíma ferdalagi! Punkturinn yfir i-id var samt á næturna…jebb drengurinn taladi ekki upp úr svefni, nei nei hann hrópadi. Hverja einustu nótt voknudum ég og Anne a.m.k. tvisvar vid thad ad hann hrópadi allt mogulegt um fimleika og fótbolta og hvad ætti ad gera og hvad ekki í theim efnum. Ég er ekki frá thví ad thad var audveldara ad skilja hann thegar hann var sofandi. Thetta er allavega eitt ad thví undarlegast sem ég hef upplifad.

Svo voru páskarnir ad klárast og thad er búid ad vera skrítid ad vera ekki heima. Ég get nú samt ekki kvartad, ég fór heim med Idu sem er herbergisfélagi minn hér og hún býr í Vejle. En thad var ekki fyrr en eftir ad vid hofdum verid med í Silkeborgstevna sem var stór sýning og svo matur og fest eftir (ég var ekki ad sýna en ég festadi). En thad var mjog hyggeligt ad heimsækja Idu, vid bordudum og sváfum og svo bordudum vid og sváfum. Á sunnudaginn nenntum vid thví svo ekki meir svo vid gerdum bál heima hjá einum af vinum hennar sem býr á risa bóndabæ rétt hjá og grilludum braud og sygurpúda í anda skátanna.

En í allt adra sálma thá hef ég komist ad thví ad ég er mesti tæknispassi sem ég veit um, ef madur tekur kyn og aldur o.s.frv. inn í myndina. Sem dæmi thá setti ég fyrstu færsluna mína thrisvar sinnum inn. Ég fann aftur á móti út hvernig ég átti ad eyda hinum út og thad var stórt afrek skal ég segja ykkur. Annars get ég aldrei bara svona fundid út úr hlutunum, ég skemmi thá bara eda allt fer einhvern vegin til helvítis. Bara svoan einfaldur hlutur eins og ad skipta um stod med fjarstíringu getur audveldlega leitt til ad allar stodvarnar detti út. Thad getur fadir minn stadfest, eflaust med miklum biturleika. Ég veit ekki alveg af hverju svona stendur á en ég er ad vinna í hlutunum og getur thessi veraldavefssída stadfest thad. Myndirnar eru ekki enn komnar á vefinn en thetta kemur í páskakjúklingaskrefum.

Ég vona svo bara ad allir hafi haft thad gott um páskana og ég sendi innilegar ástar og saknadarkvedjur

slater

Wednesday, April 05, 2006

Så sker da noged!

Dav damer og herrer!

Uhumm…nú er komin tími til ad eitthvad fari ad gerast á thessari sídu. Hin færslan telst ekki med thar sem thad var ég ekki ad verki. Ég gruna sterklega jólasveininn eda Wu tang.
Ég vil byrja á ad thakka Frikka fox og Matta módeli fyrir mína afar thjódernislegu en jafnframat stórglæsilegu sídu. Hún er búin ad vera lengi í vinnslu en nú fara sko hlutirnir ad gerast, boltinn ad rúlla og svo framvegis.
Ég nenni nú ekki ad fara í allt sem á daga mína hafa drifid hér í danaveldi en ég mun gera mitt besta. Sídustu tvær vikur hafa verid med theim erfidustu og uppteknustu sem ég hef lifad, og their sem thekkja mig vita ad ég er von ad hafa morg járn í eldinum…vis du ved hvad je mener. Fyrir um thad bil tveim og hálfri viku datt mér og nokkrum stelpum sem ég stekk med ad thad væri reghtig fedt ad stofna mix lid í skólanum og keppa á danska meistarmórinu sem er í maí. Svo vid konnudum málid og komumst ad thví ad vid thyrftum ad vera med í móti sem var eftir tvær vikur til ad fá ad vera med. Svo vid ákvádum ad slá til og vitir menn, vid fengum 6 drengi med okkur. Svo vid somdum seríu og lærdum og æfdum stokk á 1 og ½ viku takk fyrir TAKK! Oooog ekki nóg med thad, thá lentum vid í 3. sæti af 6 lidum!!! (fyrir ykkur sem ekkert vitid um fimleika og er alveg sama…thá eigid thid nú ad slá á lær og segja hananú!).

En thetta er ekki thad eina sem er búid ad vera ad gera mig upptekna, ó nei. Alla thessa viku er ég ad vinna í efterskole eins og danirnir kalla thad, en thad er fyrir krakka í tíunda og 1. bekk í menntaskóla thar sem thau geta valid sér sérstaka skóla t.d. med tónlist eda íthróttir sem aukafag. Skólinn sem ég ásamt tvem odrum heitir Bøvling og er íthróttaefterskole. Vid erum svo búin ad kenna í ollum íthróttatímunum theirra og thad er alveg slatti. Mikil pressa ad standa fyrir framan 70 manns sem glápa á thig og bída eftir ad fá skilabod um hvad nú ske, og thad á donsku. Svo thad hefur farid mikill tími í ad undirbúa og threitt er vægt til orda tekid um ástand mitt nú…ef svo má ad ordi komast…sem ég held ekki…

Annars er allt gott ad frétta hédan ég er búin ad læra ad tala donsku…mikilvægt skref. Ég hef einnig ákvedid ad thad verda engar enskuslettur á thessari sídu, einungis danskar. Thad er ótrúlegt hvad hálft ár í útlondum gerir fyrir manns mál. Ég blanda ollu saman og í stadin fyrir ad geta tjád mig vel á einu tungumáli get ég nú tjád mig á threm med misjofnum árangri. Ég kvarta ekki en heilinn minn og sjálfsvirding gera thad stundum.

Jæja svo er frumraun minni í blogheiminum brátt ad ljúka og einungis ein leid eftir hana held ég, og thad er upp á vid. Madur myndi et.v. búast vid meiru eftir hálfs árs dvol erlendis, en ekki orvænta ég luma á ýmsu í pokahorninu.

slater

Sunday, January 08, 2006

Hey